Handbolti

Kvennalandsliðið hafnaði í 3. sæti

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta hafnaði í 3. sæti í undanriðli sínum fyrir Heimsmeistaramótið í handbolta eftir góðan fimm marka sigur á Ítölum í morgun, 30-25. Rúmenía hafnaði í efsta sæti riðilsins og komst áfram í lokakeppnina.

Það var fyrst og fremst frábær síðari hálfleikur sem tryggði íslenska liðinu sigur en Ítalir höfðu 14-12 forystu í hálfleik. Guðbjörg Guðmannsdóttir og Rakel Dögg Bragadóttir voru markahæstar með átta mörk. Íslenska liðið hlaut alls fjögur stig í leikjunum fjórum - vann tvo leiki en tapaði tveimur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×