Erlent

Jón Ásgeir áhrifamikill í breskum tískuheimi.

MYND/Heiða

Jón Ásgeir er annar áhrifamesti maðurinn í breskum tískuiðnaði samkvæmt breska tískutímaritinu Drapers Fashion Magazine en blaðið tekur árlega saman lista yfir hundrað áhrifamesta fólkið í tískuiðnaðinum á Bretlandi.

Jón Ásgeir fylgir í fótspor Stuart Rose, forstjóra Marks og Spencer. Þess má geta að á síðasta ári var Jón í 14 sæti listans og tískufyrirmyndin Kate Moss er í 29. sæti og Victoria Beckham í 65. sæti




Fleiri fréttir

Sjá meira


×