Segir borgarstjóra tvísaga í lóðakaupamáli 8. desember 2006 13:00
Oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn Reykjavíkur segir borgarstjóra tvísaga um þátt sinn í kaupum borgarinnar á fjórum hekturum í Norðlingaholti sem voru í eigu Kjartans Gunnarssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins. Málavextir eru með þeim hætti að í tíð Þórólfs Árnasonar, fyrrverandi borgarstjóra R-listans, krafðist Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdarstjóri Sjálfstæðisflokksins 110 milljóna fyrir fjögurra hektara land sitt í Norðlingaholti. Þáverandi borgarstjóri neitaði að gangast að því fyrir hönd Reykjavíkurborgar. Eftir árangurslausar viðræður var farið í eignarnám og í mars síðastliðnum var verðmæti lóðar Kjartans 208 milljónir króna að mati matsnefndar eignarnámsbóta. Þann 6. apríl síðastliðinn lagði skrifstofustjóri lögfræðisviðs borgarinnar, Kristbjörg Stephensen, til að höfðað yrði mál til að hnekkja úrskurði matsnefndarinnar á þeim forsendum að kröfur væru alltof háar. Vilhjálmur Þ. Vihjálmsson borgarstjóri lagði fram minnisblað fyrir borgarráð í gær þar sem hann telur að borgin eigi að una matinu og ekki höfða dómsmál heldur fylgja úrskurði matsnefndarinnar um að greiða 208 miljónir fyrir lóð Kjartans. Þetta segir oddviti Samfylkingarinnar, Dagur B. Eggertsson, ganga í berhögg við tillögur skrifstofustjóra lögfræðisviðsins. Ekki náðist í borgarstjóra vegna málsins í morgun en rætt verður við hann í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Stj.mál Mest lesið „Þetta má aldrei gerast aftur“ Innlent Segir ákvörðun um kæru fyrir nauðgun tekna fyrir andlát flugmanns Innlent Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Innlent Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Innlent Pilturinn áfram bak við lás og slá Innlent Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Innlent Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Innlent Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Innlent Fleiri fréttir Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Kúrlandi ekki oft stolið Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Nemandinn sem stakk Ingunni áfrýjar dómi Ráðþrota móðir, umtöluð rannsókn og skiltaþjófnaður Fagnar niðurstöðunni en lýsir yfir þungum áhyggjum „Þetta má aldrei gerast aftur“ Hissa ef tillaga um stjórnarslit hefði ekki komið fram Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Þrjú vilja stýra Minjastofnun Varla komist í kast við lögin fyrr en hann flutti kókaín til landsins Bein útsending: Framtíð menntunar á tímum gervigreindar Bein útsending: Sátt um betra menntakerfi Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Nýr umboðsmaður og SI svara seðlabankastjóra Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Vilja að takmarkanir á starfsmannaleigur verði skoðaðar Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Tuttugu lyklar í Árbæjarlaug horfnir Inga segir landið að sökkva í sæ vargaldar Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Svandís Svavarsdóttir mætir í Samtalið Pilturinn áfram bak við lás og slá Bein útsending: Ráðstefna ASÍ og SA um vinnumansal á Íslandi Sjá meira