Fótbolti

Kristinn þjálfari U-19 ára landsliðsins

Kristinn R. Jónsson var í dag ráðinn þjálfari U-19 ára landsliðs karla í fótbolta. Kristinn tekur við starfi Guðna Kjartanssonar, sem nýlega var ráðinn aðstoðarmaður A-landsliðs kvenna. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ í dag.

Kristinn er margreyndur þjálfari og hefur m.a. stýrt meistaraflokkum hjá ÍBV, Fram og Fjölni. Kristinn skrifaði undir tveggja ára samning.

Þá endurnýjaði KSÍ samninga sína við þrjá aðra þjálfara; Lúka Kostic verður áfram þjálfari U-21 árs landsliðsins, Freyr Sverrisson stýrir U-16 ára landsliðinu og þá mun Ólafur Þór Guðbjörnsson halda áfram með U-19 ára lið kvenna. Ólafur skrifaði undir eins árs samningen þeir tveir fyrstnefndu skrifuðu undir tveggja ára samninga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×