Erlent

Rúmlega fimmhundruð manns hafa fundis látnir á Jövu

MYND/AP

Enn er leitað í rústum húsa sem holskeflan á Jövu jafnaði við jörðu. 525 manns hafa nú fundist látnir og 160 til viðbótar er enn saknað. Flóðbylgjan skall á suðurströnd Jövu eftir að jarðskjálfti upp á 7,7 á Richter varð fyrir utan suðurströnd eyjarinnar í fyrradag.

Þriggja metra háar öldur skullu fyrirvaralaust á suðurströnd Jövu skömmu eftir skjálftann. Fjöldi þeirra látnu á enn eftir að hækka meðan björgunarfólk leitar í rústum húsa og hótela að eftirlifendum eða líkum. Neyðaraðstoð er nú farin að berast til Jövu, hjálpargögn, matvæli og líkpokar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×