Stephen Jackson á leið í fangelsi? 11. október 2006 22:45 Stephen Jackson gæti verið á leið í grjótið fyrir slagsmál og skytterí fyrir utan súlustað í Indianapolis á dögunum NordicPhotos/GettyImages
Stephen Jackson, leikmaður Indiana Pacers í NBA deildinni, gæti nú átt yfir höfði sér fangelsisvist eftir að lögregla í Indianapolis ákvað í dag að kæra hann fyrir gáleysi og ólæti á almannafæri í kjölfar þess að hann lenti í átökum fyrir utan súlustað þar í borg á dögunum. Jackson lenti í átökum fyrir utan skemmtistaðinn með þeim afleiðingum að einn þeirra sem hann lenti í útistöðum við ók á hann með bíl sínum. Jackson náði þá í skammbyssu og skaut nokkrum skotum út í loftið til að skakka leikinn. Nú hefur lögregla ákveðið að kæra hann fyrir þessa tilburði og þar sem Jackson er enn á skilorði eftir slagsmálin frægu í Detroit haustið 2004 - gæti leikmaðurinn átt yfir höfði sér að þurfa að dúsa í fangelsi í nokkra mánuði. Forráðamenn Indiana hafa enn ekki viljað tjá sig um málið, en ljóst er að þetta er salt í sárin fyrir félagið, sem hefur tjaldað öllu til að hreinsa mannorðið eftir ólætin í Detroit forðum - og ekki síst eftir að félagið losaði sig við villinginn Ron Artest.
Erlendar Íþróttir Körfubolti NBA Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Bein útsending: Spáin og upphitun fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Sport Fleiri fréttir Bein útsending: Spáin og upphitun fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA Sjá meira