Erlent

Skógar að stækka á ný

Mynd frá Rauðavatni. Myndin er úr myndasafni.
Mynd frá Rauðavatni. Myndin er úr myndasafni. MYND/Valgarður

Ný skýrsla heldur því fram að skógar séu aftur að sækja í sig veðrið. Skýrslan komst að því að aukning á skógum sé fyrir hendi í nærri öllum löndum þar sem einstaklingar hafa meira en 4.600 dollara, eða 318.000 krónur, í árstekjur hafi skógar stækkað.

Vísindamennirnir sem halda þessu fram segja að ný tækni í framleiðslu á landbúnaðarvörum og aukinn flutningur fólks til stórborga hafi hjálpað til við þetta ferli. Skógar hafa stækkað hvað mest í Bandaríkjunum og Kína en halda þó áfram að minnka í Brasilíu og Indónesíu.

Vísindamennirnir skoðuðu gervihnattamyndir af skógum og tóku tillit til stærðar trjáa sem og hversu mikinn koltvísýring skógurinn bindur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×