Fótbolti

Ronaldo á leið til AC Milan?

Ronaldo hefur látið í það skína að hann vilji fara frá Real Madrid
Ronaldo hefur látið í það skína að hann vilji fara frá Real Madrid NordicPhotos/GettyImages

Forráðamenn spænska félagsins Real Madrid munu í dag hitta kollega sína hjá AC Milan þar sem rætt verður um hugsanleg kaup ítalska félagsins á brasilíska framherjanum Ronaldo. AC Milan tryggði sér í gærkvöld sæti í riðlakeppni meistaradeildarinnar og eru forráðamenn félagsins nú að leitast við að styrkja leikmannahóp sinn.

"Ég mun eiga fund með forráðamönnum Milan í dag. Ég veit að þeir hafa þegar talað við Ronaldo og ég er ekki hrifinn af því, en ég ætla að sjá hvað þeir segja. Við erum ekkert sérstaklega hrifnir af því að selja Ronaldo, en ef sú staða kæmi upp - erum við með ágæta hugmynd um hvað við viljum í staðinn," sagði Ramon Calderon forseti Real, sem talinn er muni reyna að fá Brasilíumanninn Kaka frá Milan í staðinn. Það gæti hinsvegar átt eftir að reynast honum erfitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×