Arabi gabbaði Kaupþing Noregi 16. júní 2006 19:21
Rúmlega hundrað og tuttugu milljónir króna úr sjóðum Kaupþings í Noregi fóru í súginn eftir að arabískur kaupsýslumaður narraði starfsmenn þess til hlutabréfakaupa. Þótt upphæðin sé ekki há á mælikvarða fyrirtækisins þykir málið hið vandræðalegasta. Þetta kemur fram í grein í norska blaðinu Dagens næringsliv og að því er forsvarsmenn Kaupþing banka segja hefur málinu þegar verið vísað til lögreglu og norska fjármálaeftirlitsins. Forsaga þess er sú að snemma á þessu ári hafði fjárfestir frá Abu Dhabi samband við Kaupþing í Noregi og vildi selja þeim hlutabréf fyrir 11 milljónir Bandaríkjadala. Miðlarar Kaupþings féllust á það og seldu svo bréfin áfram. Þegar til kastana kom fengust bréfin hins vegar ekki afhent enda var arabíska fjárfestinn hvergi að finna. Til að standa við sína samninga varð Kaupþing því að kaupa bréf annars staðar frá en í millitíðinni hafði gengið hækkað verulega. Bankinn stóð því uppi með um tíu milljóna norskra króna tap, um 120 milljónir íslenskra króna. Hagnaður KB-banka á fyrsta ársfjórðungi þessa árs nam 18,8 milljörðum króna og í því samhengi er þessi upphæð ekki ýkja há. Málið þykir aftur á móti býsna neyðarlegt. Einum yfirmanna Kaupthings Norge hefur þess vegna verið sagt upp störfum en hann átti að hafa eftirlit með frágangi viðskipta. Ekki er þó talið að hann eigi beinan þátt í málinu heldur hafi hann brotið reglur um greiningu viðskiptamanna. Sá telur uppsögn sína ólöglega og íhugar því að stefna Kauptþingi fyrir vikið.
Fréttir Innlent Mest lesið Hafi verið látinn fljúga þrátt fyrir þekkt andleg veikindi Innlent Vissu ekki að þeir væru að ræna Kim Kardashian Erlent Réðust á tvo menn á göngu Innlent Bogi les sinn síðasta fréttatíma á morgun Innlent Rúmur helmingur óhress með Trump Erlent Hljóðheimur sumarsins í hættu: Mikil fækkun lóu og spóa Innlent Telur að Selenskí geti samþykkt að gefa eftir Krímskaga Erlent „Ég vildi óska að fólk gæti séð drenginn minn eins og hann er“ Innlent Kjördagur framundan í Kanada Erlent Sixtínsku kapellunni lokað vegna páfakjörs Erlent Fleiri fréttir Ökumaðurinn í Vancouver ákærður fyrir manndráp Sixtínsku kapellunni lokað vegna páfakjörs Telur að Selenskí geti samþykkt að gefa eftir Krímskaga Kjördagur framundan í Kanada Vissu ekki að þeir væru að ræna Kim Kardashian Ellefu manns látnir og talan gæti hækkað Rúmur helmingur óhress með Trump Eðlilegt að endurskoða sjálfstjórnarlögin Framtíðin sé járntjald frá Finnlandi niður að Svartahafi Gröf Frans páfa opin gestum Bréf ritað um borð í Titanic seldist á tugi milljóna Sprenging í Íran varð 25 að bana Níu létust í árásinni í Vancouver Úkraínskir hermenn séu farnir úr Kúrsk með hjálp Norður-Kóreu Segir Pútin ekki vilja enda stríðið Hittust í fyrsta sinn eftir að upp úr sauð Myndir: Ráðamenn heims fylgja Frans páfa til hinstu hvílu Virginia Giuffre er látin Bein útsending: Útför Frans Páfa Bandaríkin vilja láta meira undan Rússum en Evrópa Hátt settur herforingi fórst í bílsprengju nærri Moskvu Mislingar á mörkum þess að verða landlægir í Bandaríkjunum aftur Þrír látnir og tugir særðir Byrjaður að selja varning merktan „Trump 2028“ Tugir þúsunda kveðja páfann fyrir útförina Með nettengingu í trássi við öryggisreglur til að komast inn á Signal Neituðu sök en viðurkenna nú að hafa drepið hjálparstarfsmann Árásarmaðurinn sagður aðhyllast hugmyndir Hitler Dæmdur kardínáli segist mega kjósa næsta páfa „Vladímír, HÆTTU!“ Sjá meira