Handbolti

Þetta gerist ekki á hverjum degi

Bjarki Sigurðsson og Örn Ingi Bjarkason
Bjarki Sigurðsson og Örn Ingi Bjarkason
Feðgarnir Bjarki Sigurðsson og Örn Ingi Bjarkason spiluðu saman síðasta föstudag þegar Afturelding lék gegn Gróttu í 1. deild karla í handbolta. Þetta er í fyrsta sinn sem þeir feðgar leika saman en Bjarki er þjálfari Aftureldingar, sem situr í toppsæti deildarinnar.

„Það er að sjálfsögðu gaman að hafa spilað með drengnum, þetta gerist það ekki á hverjum degi,“ sagði Bjarki, sem er 39 ára. „Það hefur verið mikið um veikindi í liðinu svo ég spilaði þennan leik. Ég hef æft með liðinu og tel mig enn geta gert eitthvert gagn, því hef ég verið að spila eitthvað í vetur en ekki þó alla leiki. Markmiðið er að komast upp og okkur hefur gengið mjög vel, erum taplausir og höfum skorað flest mörk og fengið fæst á okkur. Það sýnir það bara að við erum með besta liðið í deildinni, ég er óhræddur við að segja það.“

Örn Ingi sonur hans er sextán ára gamall, hann getur bæði spilað miðju og skyttu og er mikið efni. Hann hefur meðal annars æft með unglingalandsliðinu en þetta var hans fyrsti meistaraflokksleikur.

„Hann hefur verið að standa sig mjög vel og þetta er árangur erfiðisins. Hann er að fá tækifæri eins og aðrir sem æfa vel og skila árangri. Eins og venjulega þegar um frumraun er að ræða þá var smá stress í honum. Hann sýndi það þó að hann getur þetta alveg og í þessum leik náði hann að skora sitt fyrsta meistaraflokksmark,“ sagði Bjarki, sem setti nokkur mörk sjálfur í leiknum.

Afturelding vann Gróttu 29-23 og hefur unnið alla ellefu leiki sína í 1. deildinni til þessa. Staða liðsins er góð en það hefur fjórum stigum meira en ÍBV, sem er í öðru sæti þrátt fyrir að eiga tvo leiki til góða á Eyjamenn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×