Fótbolti

Tímabilið búið?

Eiður er hér á æfingu hjá Barcelona fyrir nokkru.
nordicphotos/afp
Eiður er hér á æfingu hjá Barcelona fyrir nokkru. nordicphotos/afp

Alls er óvíst hvort Eiður Smári Guðjohnsen geti spilað með Barcelona í lokaleik spænsku deildarinnar. Eiður fékk slæmt högg á vinstra hnéð og neyddist til að snúa aftur til búningsherbergja. Ekki er ljóst hversu lengi Eiður verður frá en það ætti að koma í ljós eftir nánari skoðun.

Barcelona leikur gegn Gimnastic á sunnudaginn en á sama tíma leikur Real Madrid gegn Mallorca. Ef Real vinnur sinn leik tryggir það sér titilinn á Spáni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×