Viðskipti innlent

Vinna eldsneyti úr mengandi útblæstri

Orkufélag í eigu bandarískra og íslenskra aðila stefir að því að hefja framleiðslu á metanóli úr útblæstri álvera á næsta ári.
Orkufélag í eigu bandarískra og íslenskra aðila stefir að því að hefja framleiðslu á metanóli úr útblæstri álvera á næsta ári. Markaðurinn/GVA
Carbon Recycling International, félag í eigu bandarískra og íslenskra aðila, hefur skrifað undir viljayfirlýsingu við íslenskt raforkufyrirtæki um byggingu þriggja til fimm megavatta tilraunaverksmiðju hér á landi.

Með með tækni fyrirtækisins verður til dæmis hægt að vinna metanól úr útblæstri álvera í Helguvík og Bakka, sem unnið er frekar yfir í bensín á óbreytta bíla og önnur ökutæki.

Búnaður Carbon Recycling International tekur við útblæstri álvera áður en hann fer úr kerjum í hreinsi­búnað þeirra. Gangi allt eftir er reiknað með að tæknin geti minnkað losun koltvísýrings­útblásturs álvera um rúm níutíu prósent. Búist er við að sömu tækni verði hægt að nýta fyrir raforkuver erlendis sem vinna raforku úr kolum og hafa fram til þessa mengað mikið.

Fyrirtækið mun boða til fréttamannafundar á miðvikudag í næstu viku en kynna sig frekar fyrir fjárfestum á fjárfestaþingi Seed Forum tveimur dögum síðar.

Stefnt er að því að fyrsta verksmiðjan taki til starfa að ári og geti framleitt allt að tíu þúsund lítra af metanóli á dag, sem verður unnið yfir í fimm þúsund lítra af bensíni. Búið er að ljúka gerð tilraunaverksmiðju sem gefur af sér nokkrar lítra á dag af metanóli.

Á bak við Carbon Recycling International standa meðal annars Nóbelsverðlaunahafi í efnafræði árið 1994 og yfirmaður Mars-verkefnis bandarísku geimvísindastofnunarinnar (NASA) auk fyrrum forstjóra bandarísks orkufyrirtækis og fjögurra íslenskra prófessora í orku- og umhverfisfræðum. Þá er á bak við það íslenskt olíufélag, bankar og um þrjátíu einstakir fjárfestar sem eru flestir Íslendingar.

Andri Ottesen, framkvæmdastjóri Klaks nýsköpunarmiðstöðvar, segir forsvarsmenn félagsins hafa fundað með íslenskum ráðamönnum og hafi margir þeirra lýsti yfir velvilja og ánægju með tækni fyrir­tækisins. Hann segir mikla grósku í orkugeiranum um þessar mundir þar sem heimsmarkaðsverð á eldsneyti sé í hæstu hæðum auk þess sem reiknað sé með að olíulindir heimsins muni einungis gefa af sér til næstu hundrað ára í viðbót. Mýmargir möguleikar séu því í skoðun víða um heim til að búa til orkugjafa fyrir bíla í stað olíu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×