Innlent

Meindýraeyðir áfrýjar dómi

Haglabyssur. Myndin tengist fréttinni ekki.
Haglabyssur. Myndin tengist fréttinni ekki.
Árni Logi Sigurbjörnsson meindýraeyðir hefur ákveðið að áfrýja dómi, sem hann hann hlaut í síðustu viku, til Hæstaréttar, að því er hann hefur tjáð Fréttablaðinu.

Árni Logi var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir brot á vopnalögum. Hann hlaut tveggja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir vörslu vopna með ólögmætum hætti, þar sem stórt vopnasafn hans hafði ekki verið geymt í læstum hirslum eins og lög gera ráð fyrir.

Árni Logi kveðst ekki ætla að una þessum dómi. Hann kveðst vera starfandi meindýraeyðir og sinna starfi sínu um allt land.- jss



Fleiri fréttir

Sjá meira


×