Fagfjárfestar sitja að hlutafjárútboði í Føroya Banka 13. júní 2007 06:30
Fagfjárfestum og öðrum stórum fjárfestum býðst að kaupa um 80 prósent þess hlutafjár sem færeyska landsstjórnin ætlar að selja í hlutafjárútboði Føroya Banka sem hófst í þremur löndum á mánudaginn. Almenningur og aðrir smærri fjárfestar fá því um fimmtungsskerf í sinn hlut en íslenskum fjárfestum stendur til boða að kaupa hlutabréf í útboðinu í gegnum Landsbankann. Jakob Fink, verkefnastjóri hjá Handelsbanken Capital Markets í Kaupmannahöfn, segir það alvanalegt fyrirkomulag við frumskráningar að meira falli í skaut fagfjárfestum en almennum fjárfestum. „Að jafnaði fá almennir fjárfestar um 10-15 prósent í sinn hlut við frumútboð í Vestur-Evrópu og Skandinavíu. Þannig að 20 prósent er því nokkru meira en venjan er." Færeyska ríkið hyggst selja allt að 6,6 milljónir hluta eða um 66,6 prósent hlutafjár. Heildarvirði útboðsins gæti því orðið allt að 14,3 milljarðar íslenskra króna miðað við að útboðsgengi verði 189 danskar krónur að lokinni áskriftasöfnun (book-building). Tæpir 2,9 milljarðar koma því til skiptanna hjá almennum fjárfestum í þremur löndum ef allt hlutafé Føroya Banka selst.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Viðskipti innlent Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Viðskipti innlent Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Viðskipti innlent Sölunni slegið á frest Viðskipti innlent „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Sölunni slegið á frest Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Play í frjálsu falli Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Frigus fór fýluferð í Landsrétt Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Úlfur Þór til Firma lögmanna Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði „Play verður áfram íslenskt“ Sækja um leyfi á Möltu Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Hér og nú fjölgar starfsmönnum Samið um 800 íbúðir á Ásbrú Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Hefur lokið störfum hjá Viðreisn en vill vera á lista Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Segir aðför Eflingar með ólíkindum Áfram engar loðnuveiðar Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota Segja fullyrðingar borgarfulltrúa um Carbfix ekki standast Sjá meira