Viðskipti innlent

Góa tekur yfir fram­leiðslu á Omnom

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Helgi Vilhjálmsson í Góu.
Helgi Vilhjálmsson í Góu. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Góa hefur keypt allan tækjabúnað Omnom og mun hefja framleiðslu á Omnom súkkulaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækjunum.

„Við erum mjög ánægðir með þessa niðurstöðu. Með þessu náðum við að halda framleiðslunni áfram á Íslandi og það frábæra fólk sem hefur unnið í framleiðslunni með okkur mun geta gert það áfram. Tækifærin verða stærri og við lítum björtum augum til framtíðarinnar,“ segir Óskar Þórðarsson einn stofnanda Omnom.

Allir starfsmenn í framleiðslu Omnom hafa fengið boð um starf hjá Góu við framleiðsluna frá og með 1. mars.

„Fyrir okkur er þetta mjög spennandi og býður upp á skemmtilega möguleika. Við höfum horft til þess sem Omnom hefur verið að gera í talsverðan tíma og erum ánægð með að getað stuðlað að því að unnt sé að halda því ævintýri áfram,“ segir Helgi Vilhjálmsson um samstarfið.

Omnom var stofnað árið 2013 og er þekkt fyrir hágæða súkkulaði sem framleitt er frá kakóbaun til vöru.

„Fyrirtækið sérhæfir sig í að nota hágæða kakaóbaunir frá öllum heimshornum. Omnom hefur vakið alþjóðlega athygli fyrir skapandi og bragðmikilli nálgun á súkkulaði,“ segir í tilkynningu.

Góa var stofnað árið 1968 og hefur síðan þá verið rekið af Helga Vilhjálmssyni og fjölskyldu. Fyrsta vara Góu var Góa karamellur, en síðar urðu til vörur eins og Hraun, Æði, Florída, Góu rúsínur og alls konar kúlur. Góa keypti síðar fyrirtæki eins og Linda og Apollo. Í dag er Góa einn stærsti sælgætisframleiðandi Íslands og hefur alla sína framleiðslu á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×