Menning

Rætt um Bjólf og Jónas

fræðimaðurinn Dick Ringler ræðir um þýðingar á verkum Jónasar Hallgrímssonar.
fræðimaðurinn Dick Ringler ræðir um þýðingar á verkum Jónasar Hallgrímssonar.

Bandaríska sendiráðið gengst fyrir heimsókn prófessorsins Dick Ringler hingað til lands en hann mun halda fyrirlestra í Háskóla Íslands á morgun og á þriðjudag. Ringler er prófessor emeritus við Wisconsin-háskóla í Madison, en þar kenndi hann forníslensku og norræn fræði í rúm þrjátíu ár. Hann er enn fremur heiðursdoktor við Háskóla Íslands.

 Ringler mun ræða um fornenska frásagnarljóðið Bjólfskviðu sem verður gefið út í nýrri þýðingu fyrirlesarans síðar á þessu ári. Mun hann fjalla um ýmis álitamál sem tengjast þessu gamla kvæði og kynna leiklestur á þýðingunni sem kom nýlega út á geisladiski. Fyrirlesturinn verður haldinn á morgun milli kl. 12 og 13 í Odda við Sturlugötu.

Í síðari fyrirlestrinum á þriðjudag mun Ringler fjalla um þýðingar á verkum Jónasar Hallgrímssonar og hvernig og hvort sé hægt að þýða form og merkingu skáldskaparins yfir á ensku. Fyrir nokkrum árum kom út ritið „Bard of Iceland“ sem hefur að geyma þýðingar fyrirlesarans á helstu skáldverkum Jónasar ásamt ítarlegum skýringum og æviágripi skáldsins. Fyrirlesturinn verður kl. 12-13 í stofu 132 í Öskju við Sturlugötu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.