Menning

Madonna í H&M og á eBay

Í gær var byrjað að selja tískulínu hannaða af Madonnu í verslunum H&M. Nú þegar hefur mikið af fötunum ratað á uppboðsvefinn eBay. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Madonna og H&M eru í samstarfi því verslunin klæddi hana, hljómsveit hennar og dansara á Confessions Tour tónleikaferðalagi hennar í fyrra.

Jenni Trapper-Hoël, talsmaður H&M, segir í viðtali við People að verslunin sé að fylgjast með hvar fötin lendi. Frekar kjósi hún að fólk kaupi fötin í verslunum H&M en setur sig þó ekki á móti því að fötin séu seld á uppboðsvefjum, svo fremur sem ekki sé um of stórt upplag að ræða.

H&M, sem Íslendingar þekkja margir hverjir vel erlendis frá, er í 18 löndum. Þegar búðirnar opnuðu í gær voru víða langar raðir og seldist margt úr línu Madonnu upp á staðnum. Í línunni má finna kimono kjól úr silki, capri buxur og kápu í felulitum. Á eBay er sumt af þessum vörum selt á tvöföldu verði. Það er því ljóst að lína Madonnu leggst vel í verslunarglaðar konur.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.