Erlent

Jólagjafir handa Madeleine

Madeleine McCann.
Madeleine McCann.
Foreldrar Madeleine McCann halda svo sterkt í vonina um að hún sé enn á lífi að þau hafa keypt handa henni jólagjafir. Tvíburasystkini hennar hafa skrifað jólasveininum bréf þar sem þau biðja um að fá hana aftur á jólunum.

Foreldrar hennar segja að ef Madeleine sneri aftur væri það stærsta jólagjöf fjölskyldunnar nokkrusinni. Það myndi líka gleðja fólk um allan heim, sem hefur fylgst náið með fréttum af litlu telpunni.

Átta mánuðir eru nú frá því Madeleine hvarf af hótelherbergi foreldra sinna í Portúgal, þar sem þau voru í fríi. Síðan hefur ekkert til hennar spurst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×