Menning

Eiríkur flytur til Finnlands

Alfarinn í bili Eiríkur Örn flytur til Helsinki eftir páska, og gengur í það heilaga í ágúst.
Alfarinn í bili Eiríkur Örn flytur til Helsinki eftir páska, og gengur í það heilaga í ágúst.

Ljóðskáldið og Nýhil-liðinn Eiríkur Örn Norðdahl er á leið í víking til Finnlands. Eiríkur, sem hefur verið afar áberandi í bókmenntaheiminum á síðustu misserum og árum, flyst búferlum til Helsinki að páskafríi loknu, en þar býr sænsk unnusta hans.

„Ég man nú ekki nákvæmlega hvenær ég ákvað að flytja til Helsinki, en ég lofaði mér því síðasta sumar að ég skyldi fara eitthvert og vera í að minnsta kosti ár. Ég er búinn að vera í þrjú ár á Ísafirði núna og það var kominn tími til að hreyfa sig,“ sagði Eiríkur, sem er þar fyrir utan trúlofaður maður. Unnustuna, sem heitir Nadja, hefur Eiríkur þekkt frá fimmtán ára aldri. „Við höfum verið formlega saman síðan um jólin og ætlum að gifta okkur í ágúst,“ sagði hann.

Eiríkur býst þó ekki við að hann yfirgefi fósturjörðina fyrir fullt og allt. „Ég geri ráð fyrir því að ég eigi eftir að búa aftur á Ísafirði, og fara aftur burtu,“ sagði Eiríkur, sem mun ekki sitja aðgerðarlaus í Finnlandi. „Ég er að fara að þýða og skrifa, og verð væntanlega með smá útvarpsþátt um ljóðlist í haust,“ sagði hann. Hann er þá ekki horfinn að sjónarsviðinu? „Nei, nei. Í Finnlandi er ég heldur ekkert mikið lengra frá Íslandi en á Ísafirði.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.