Risaslagur í beinni á Sýn í kvöld 5. janúar 2007 17:17 Dirk Nowitzki og félagar í Dallas hafa verið óstöðvandi í vetur og setja stefnuna á meistaratitilinn NordicPhotos/GettyImages
Það verður sannkallaður risaslagur í beinni útsendingu Sýnar klukkan 1 í nótt þegar erkifjendurnir San Antonio Spurs og Dallas Mavericks eigast við í NBA deildinni. Liðin hafa mæst tvisvar í vetur og hvort lið hefur sigrað einu sinni. Þau áttust líka við í undanúrslitum Vesturdeildar síðasta vor þar sem Dallas hafði betur í sjö leikjum í einni bestu seríu úrslitakeppninnar. Dallas hefur verið sjóðandi heitt undanfarið og hefur unnið 12 leiki í röð - og það í annað sinn á fyrstu tveimur mánuðum tímabilsins. Ekkert lið í sögu NBA hefur náð tveimur 12 leikja sigurgöngum svo snemma á tímabili, ef undan er skilið ótrúlegt lið LA Lakers frá 1972 - en það lið vann 33 leiki í röð það tímabil og er eitt besta körfuboltalið allra tíma. Ekki hefur gengið jafn vel hjá San Antonio undanfarið og hefur liðið tapað fjórum af síðustu sjö leikjum sínum eftir að vinna níu af tíu í byrjun síðasta mánaðar. Auk þess hefur liðið verið að hiksta nokkuð á heimavelli sínum og hefur þegar tapað 5 af 17 leikjum sínum í San Antonio, sem er nokkuð skrítin þróun á þeim bænum. Einvígi þessara liða í úrslitakeppninni síðasta vor var hreint út sagt frábær skemmtun, þar sem Dallas hafði naumlega betur 4-3 og sýndi gríðarlegan karakter. Sá karakter varð reyndar eftir í Dallas þegar í úrslitaeinvígið gegn Miami var komið, því þá spilaði liðið alls ekki jafn vel og fyrr í úrslitakeppninni. Þegar talað er um liðin sem líklegust þykja til að hampa meistaratitlinum í sumar, eru Dallas og San Antonio almennt efst á blaði og því verður leikurinn í kvöld líklega góð upphitun fyrir það sem koma skal í vetur. Allt í beinni útsendingu á Sýn klukkan eitt eftir miðnætti.
NBA Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sjá meira