Óttast um lífríki Þingvallavatns 29. ágúst 2007 06:00 Þingvallavatn. Lífríki vatnsins þykir ekki eiga hliðstæðu í veröldinni. Fjöldi líffræðinga skrifuðu Jónínu Bjartmarz, fyrrverandi umhverfisráðherra, bréf þar sem beðið var um að fallið yrði frá veglagningu við vatnið. Gísli Már Gíslason prófessor segist þá ekki hafa fengið nein svör. Vilhelm "
Markmið Vegagerðarinnar er að gera veg með 90 kílómetra hámarkshraða. Það gefur augaleið að umferð um vatnið mun aukast eftir að Gjábakkavegur hefur verið lagður, þar sem hann er styttri leiðina til höfuðborgarsvæðisins og mun hafa í för með sér þungaflutninga," segir Gísli Már Gíslason, vatnalíffræðingur við Háskóla Íslands. Hann óttast um lífríki Þingvallavatns vegna mengunar sem hann telur að verði vegna fyrirhugaðra framkvæmda við vatnið. Björn Bjarnason, formaður Þingvallanefndar, segir nefndina ekki hafa fjallað um málefni Gjábakkavegar í tengslum við mótmæli Péturs M. Jónassonar, helsta sérfræðing heims um Þingvallavatn, en undir erindi Péturs hefur fjöldi fræðimanna tekið. Jón Helgason, framkvæmdastjóri Vegagerðarinnar, segist hafa vitað af því að fjöldi líffræðinga sendi umhverfisráðherra mótmæli vegna fyrirhugaðra framkvæmda. Hann segir að öllum hagsmunaaðilum hafi verið svarað vegna málsins en ekki sé hægt að svara öllum þeim sem hafa álit á málinu. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá hefur Pétur kært úrskurð skipulagsnefndar um Gjábakkaveg til Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, og er málið þar til athugunar. Hann telur að málið kunni að verða þess valdandi að Þingvellir falli út af heimsminjaskrá og niturmengun vegna aukinnar umferðar eigi eftir að skapa mikla hættu fyrir lífríki vatnsins. Ragnheiður H. Þórarinsdóttir, starfsmaður heimsminjanefndar, hefur lýst því yfir að hugsanlega geti málið orðið til þess að Íslendingar glati trúverðugleika sínum gagnvart UNESCO og komið í veg fyrir að Surtsey verði tekin inn á listann. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra segir lögfræðinga ráðuneytisins athuga hvort endurupptaka á úrskurði Jónínu Bjartmarz, þáverandi umhverfisráðherra, sé mögulegur en Jónína Bjartmarz staðfesti úrskurð skipulagsnefndar 10. maí, eða tveimur dögum fyrir síðustu kosningar. Hún setti það sem skilyrði að áhrif niturs á vatnið yrðu könnuð. Pétur telur að það verði of seint að kanna áhrif mengunar af völdum vegarins eftir að hann hefur verið lagður. Kolbrún Halldórsdóttir alþingismaður, sem sæti á í Þingvallanefnd, segir málið verða tekið fyrir á næsta fundi nefndarinnar. Hún muni beita sér gegn öllu því sem kunni að spilla náttúru Þingvalla.
Mest lesið „Þetta má aldrei gerast aftur“ Innlent Segir ákvörðun um kæru fyrir nauðgun tekna fyrir andlát flugmanns Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Innlent Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Innlent Pilturinn áfram bak við lás og slá Innlent Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Innlent Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Innlent Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Innlent Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Innlent Fleiri fréttir Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Nemandinn sem stakk Ingunni áfrýjar dómi Ráðþrota móðir, umtöluð rannsókn og skiltaþjófnaður Fagnar niðurstöðunni en lýsir yfir þungum áhyggjum „Þetta má aldrei gerast aftur“ Hissa ef tillaga um stjórnarslit hefði ekki komið fram Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Þrjú vilja stýra Minjastofnun Varla komist í kast við lögin fyrr en hann flutti kókaín til landsins Bein útsending: Framtíð menntunar á tímum gervigreindar Bein útsending: Sátt um betra menntakerfi Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Nýr umboðsmaður og SI svara seðlabankastjóra Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Vilja að takmarkanir á starfsmannaleigur verði skoðaðar Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Tuttugu lyklar í Árbæjarlaug horfnir Inga segir landið að sökkva í sæ vargaldar Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Svandís Svavarsdóttir mætir í Samtalið Sjá meira