Menning

Sökk eða stökk

Eggert Pétursson listmálari er einn þeirra sem leggja verk til uppboðsins en verk hans eru í miklum metum þessi misserin en fást ekki gefins enda unnin á löngum tíma með miklu nostri.
Eggert Pétursson listmálari er einn þeirra sem leggja verk til uppboðsins en verk hans eru í miklum metum þessi misserin en fást ekki gefins enda unnin á löngum tíma með miklu nostri.

Hópur listamanna leggur alþjóðlegri ráðstefnu lið sem haldin verður hér um komandi helgi með því að gefa verk eftir sig. Verða verkin boðin upp á uppboði á fimmtudag en þau verða til sýnis í Startart á Laugavegi 12b í dag og á morgun á afgreiðslutíma verslana. Klukkutíma fyrir uppboðið, sem verður kl. 17 á fimmtudag, kynna listamennirnir verkin áhugasömum.

Það er glæsilegur hópur sem leggur málefninu lið: Áslaug Thorlacius, Birgir Andrésson, Eggert Pétursson, Haraldur Jónsson, Helgi Þorgils Friðjónsson, Kristinn G. Harðarson, Kristín Reynisdóttir, Magnús Pálsson, Ólafur Lárusson, Ragnhildur Stefánsdóttir og Þórdís Alda Sigurðardóttir.

Listaverkauppboðið er til styrktar ráðstefnunni „Saving Iceland" sem haldin verður helgina 7. og 8. júlí. Þar munu sérfræðingar og fulltrúar baráttusamtaka frá fimm heimsálfum fjalla um hnattrænar afleiðingar stóriðju og stórstíflna. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér dagskrá þessa sumarþings um ástand heimskringlunnar geta litið á vefsíður því helgaðar: http://www.savingiceland.org. og http://www.savingiceland.org/conference

Áhugamenn um myndlist fá hér gullið tækifæri til að komast yfir merkileg verk og styrkja um leið ungan umræðuvettvang um gamalt deilumál.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.