Menning

Suðvestan 7 í Saltfisksetrinu

Ljósmyndarinn Olgeir Andrésson heldur sína fyrstu einkasýningu í Listasal Saltfisksetrins í Grindavík. Ber sýningin heitið Suðvestan 7. Áður hefur Olgeir sýnt með Ljósopi, félagi áhugaljósmyndara en hann byrjaði að taka myndir fyrir alvöru fyrir tveimur árum síðan.

Ljósmyndirnar á sýningunni eru landslagsmyndir og myndir frá sjávarsíðunni. Sýningin opnaði í dag, 24. febrúar og stendur til 19. mars. Saltfisksetrið er opið alla daga frá 11:00 til 18:00 og er aðgangur er ókeypis.

Saltfisksetrið






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.