Menning

Dansarar hnoðast um bæinn

Stelpurnar munu skemmta vegfarendum miðbæjarins í sumar með alls kyns uppákomum tengdum dansi.
Stelpurnar munu skemmta vegfarendum miðbæjarins í sumar með alls kyns uppákomum tengdum dansi.

Danshópurinn Hnoð samanstendur af fjórum ungum stúlkum sem stunduðu allar nám í Listdansskóla Íslands. „Við erum aðallega að vekja athygli á dansi, leikum okkur mikið með spuna og vinnum út frá aðstæðunum. Þetta er svolítið í dansleikhússtíl," segir Ásrún Magnúsdóttir en hópurinn er hluti af Skapandi sumarstarfi Hins hússins.



„Við förum um allan bæ og nýtum okkur umhverfið. Til dæmis fórum við niður í bæ um daginn, klæddar í svart frá toppi til táar. Svo fundum við stað á Laugaveginum sem okkur fannst passa og dönsuðum líka niður allan Laugaveginn." Auk Ásrúnar eru þær Berglind Pétursdóttir, Rósa Ómarsdóttir og Védís Kjartansdóttir í danshópnum fima.



Á hverjum föstudegi er svokallað Föstudagsfiðrildi Hins hússins og þá eru allir hóparnir að bralla eitthvað sniðugt í miðbænum. „Í gær vorum við á Lækjartorgi með dans-innsetningu þar sem við dönsuðum okkar útgáfu af Svanavatninu," segir Ásrún en stelpurnar eru allar þjálfaðar bæði í nútímadansi og ballett þó svo að hópurinn einbeiti sér að nútímadansinum. „Það er margt framundan hjá okkur í sumar og til dæmis ætlum við að sýna í lok sumars í Hafnarhúsinu. Svo verðum við bara niðri í bæ að skemmta vegfarendum."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.