Viðskipti innlent

Staðfesta lánshæfi Kaupþings

Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur staðfest lánshæfismat Kaupþings og gefur fyrirtækinu langtímaeinkunnina A. Einkunnin A er þriðja hæsta einkunnin sem Fitch gefur.

Í fréttatilkynningu Fitch segir að lánshæfismat Kaupþings endurspegli sterka stöðu þess á íslenska markaðnum, dreifðari hagnaðarmyndun og eignasafn, mikil gæði eigna, fullnægjandi eiginfjárstöðu og undirliggjandi arðsemi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×