Viðskipti innlent

Össur tapar 1,2 milljónum dala

Össur tapaði 1,2 milljónum Bandaríkjadala fyrstu sex mánuði árs, eða 81,8 milljónum króna sé miðað við meðalgengi á tímabilinu.

Mikill viðsnúningur varð hins vegar á öðrum ársfjórðungi og skilaði félagið 1,5 milljónum Bandaríkjadala í hagnað, eða sem nemur 94,4 milljónum íslenskra króna.



Sala Össurrar nam 11,1 milljarði íslenskra króna á fyrri helmingi árs og jókst um rúman þriðjung milli ára. Alls seldist fyrir 5,6 milljarða íslenskra króna á öðrum ársfjórðungi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×