Nýr forstjóri fer fyrir útrás Símans Hólmfríður Helga Sigurðardóttir skrifar 14. nóvember 2007 00:01 Sævar Freyr Þráinsson, nýr forstjóri Símans Meðal þess sem fram undan er hjá Símanum er stóraukið samstarf við hugbúnaðarrisann Microsoft. Fyrsta skrefið var tekið í síðustu viku þegar fyrirtækjum bauðst að leigja gagnahýsingu hjá Símanum með lausnum frá Microsoft. Markaðurinn / Völundur „
Við erum markvisst að þróa Símann í þá átt að verða alhliða fjarskipta- og upplýsingafyrirtæki, svokallað ICT-fyrirtæki (information, communication, technology).“ Þetta segir Sævar Freyr Þráinsson, sem nýverið tók við starfi forstjóra Símans. Hann segir fyrirtækið standa vel að vígi til að að ná fram þessum markmiðum. „Við höfum sérstaklega einbeitt okkur að fyrirtækjum með 250 starfsmenn eða færri á Íslandi, í Bretlandi og á Norðurlöndunum. Þetta eru fyrirtæki að íslenskri stærð eins og hafa verið okkar sérstaða um árabil. Við erum því hagvön í þessum geira. Stærri fjarskiptafyrirtækin á þessum svæðum hafa ekki einbeitt sér sérstaklega að þessum fyrirtækjum. Við sjáum þarna greinileg tækifæri sem ætlunin er að grípa.“ Útrásaráherslurnar í Bretlandi og á Norðurlöndunum eru keyrðar undir formerkjum Símans með stuðningi Skipta, móðurfélagi Símans. Skipti eru formlegur eigandi þeirra fyrirtækja sem keypt hafa verið undir útrásarstefnu Símans. „Skipti er fjárfestingararmurinn sem við vinnum með til að ná fram stefnu Símans,“ útskýrir Sævar. Meðal þeirra fyrirtækja sem keypt hafa verið nýlega eru breska fyrirtækið Aerofone, tvö fyrirtæki í Danmörku, Ventelo og Business Phone. Sævar situr í stjórn þeirra allra fyrir hönd Skipta. Hér heima eiga Skipti fyrirtækin Mílu, Já, Skjáinn, Sensa, meirihluta í Trackwell auk smærri hluta ýmissa íslenskra fyrirtækja. Skipti hafa að sögn Sævars breiðari fókus en Síminn. Þau muni í framtíðinni hugsanlega fara út í fjárfestingar á sviðum sem Síminn tengist ekki á beinan hátt. Ýmis tækifæri munu vera fólgin í að samtvinna þjónustuframboð Símans og systurfélaga hans. Skref í þá átt var tekið í síðustu viku þegar sett var í gang þjónusta fyrir fyrirtæki um kaup á hýsingarlausnum frá Microsoft. Í því felst að sögn Sævars mikil hagræðing fyrir fyrirtæki. Þau þurfi ekki lengur að fjárfesta í búnaði sem meðhöndlar tölvupóst starfsmanna í tölvum þeirra eða snjallsímum, svo sem Blackberry. Í staðinn geta þau leigt pláss í gagnahýsingu hjá Símanum. „Það sérstaka í þessu var að við settum þessar lausnir af stað á Íslandi og í Bretlandi á sama deginum. Sama þjónusta verður sett á fót í Danmörku fljótlega. Við erum því þegar farin að breikka þjónustuframboð systurfélaganna sem hingað til hafa eingöngu veitt farsímaþjónustu í Danmörku og Bretlandi. Ætlunin er að færa þau frekar inn í upplýsingatæknina.“ Síminn á í alhliða viðræðum við Microsoft um frekara samstarf. „Þetta er bara fyrsta skrefið í auknu samstarfi okkar við Microsoft,“ segir Sævar. Hann er þó ekki tilbúinn til að gefa upp í hverju það samstarf muni felast. Þess má þó geta að Microsoft er eitt þeirra risafyrirtækja sem orðuð hafa verið við uppbyggingu netþjónabús hér á landi. Sævar tók við stöðu forstjóra Símans af Brynjólfi Bjarnasyni sem nú starfar sem forstjóri Skipta en var um skeið forstjóri beggja félaga. Forstjórarnir vinna náið saman að uppbyggingu félaganna. Þeir sem ekki þekkja sérstaklega vel til innra skipulags Símans kannast ef til vill ekki við nafn Sævars Freys. Þeir eru þó sennilega fáir innan fyrirtækisins sem þekkja hann ekki. Hann er enda enginn nýgræðingur hjá Símanum. Þar hefur hann verið við störf í tólf ár á því sem næst öllum sviðum félagsins. Hann hóf starfsferil sinn í sölumálum og vann sig þaðan upp í starf markaðsstjóra. Hann hefur starfað á sviði lausnaþróunar og gagnaflutninga og tók meðal annars þátt í uppbyggingu á gagnvirku sjónvarpi Símans. Síðar gegndi hann starfi framkvæmdastjóra farsímasviðs og þá framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs Símans, áður en kom að forstjórastólnum.
Héðan og þaðan Mest lesið Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Viðskipti innlent Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Viðskipti innlent Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Neytendur Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Viðskipti innlent Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Viðskipti innlent Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Viðskipti innlent Reitir hrista upp í skipuritinu Viðskipti innlent Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Viðskipti innlent Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Ýmsar ástæður fyrir lokun en launin stóra vandamálið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Reitir hrista upp í skipuritinu Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Gefa út afkomuspá eftir allt saman 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Tekur við fjármálunum hjá Securitas Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Karen Ýr ráðin gæðastjóri Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Icelandair kaupir Airbus flughermi Í maí voru 5800 atvinnulausir Snúa vörn í sókn og kynna eldfjallaleið fyrir ferðamenn Andri Þór Viðskiptafræðingur ársins 2024 Hafa ekki nokkrar áhyggjur af fækkun ferða Sjá meira