Innlent

Héðinn og Jón Viktor í 2.-4. sæti

Alþjóðlegu meistararnir Héðinn Steingrímsson (2482) og Jón Viktor Gunnarsson (2406) eru í 2.-4. sæti, með 4,5 vinning, að lokinni 6. umferð Reykjavík International - Minningarmótsins um Þráin Guðmundsson, sem fram fór í kvöld í skákhöllinni Faxafeni.   

 

Jón Viktor sigraði indverska alþjóðlega meistarann Subbaraman Vijayalakshmi (2425) en Héðinn gerði jafntefli við rússneska stórmeistarann Mikhail Ivanov (2485).  Lettneski stórmeisarinn Normunds Miezis (2521) er efstur með 5 vinninga



Fleiri fréttir

Sjá meira


×