Innlent

Flugdólgur tekinn í Keflavík

Flugvél frá þýska flugfélaginu Lufthansa lenti á Keflavíkurflugvelli um klukkan hálf níu í morgun vegna óláta í farþega um borð. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum var maðurinn mjög ölvaður. Hann hafði meðal annars slegið til annarra farþega og áreitt flugfreyjur.

Flugvélin, sem er að gerðinni Airbus A346 var á leið frá Los Angeles í Bandaríkjunum til Munchen í Þýskalandi, þegar flugstjórinn óskaði eftir því að lenda í Keflavík vegna óláta mannsins. Hann var handtekinn við komuna en flugvélin hélt aftur í loftið áleiðis til Muchen um klukkan hálf tíu. Að sögn lögreglunnar verður maðurinn lögsóttur og má vænta hárra sekta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×