Fótbolti

Krefst þess að fá einkaþjálfara

Elvar Geir Magnússon skrifar
Del Piero heimtar einkaþjálfara sinn í þjálfarahópinn.
Del Piero heimtar einkaþjálfara sinn í þjálfarahópinn.

Viðræður Alessandro del Piero við stjórnarmenn Juventus þokast hægt áfram. Del Piero er kominn af sínu léttasta skeiði en vill alls ekki taka á sig launalækkun. Þá ber hann fram kröfur sem menn eru ekki ánægður með.

Del Piero krefst þess að einkaþjálfari hans, Giovanni Vaglini, verði tekinn inn í þjálfaralið Juventus. Þannig geti hann unnið með honum á æfingum félagsins.

Claudio Ranieri, þjálfari liðsins, er ekki alveg sáttur við þessar kröfur og segir að allir leikmenn eigi að sitja við sama borð á æfingasvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×