Handbolti

Þétt á toppnum í N1 deildinni

Þrjú lið eru efst og jöfn toppi N1 deildarinnar í handbolta eftir leiki kvöldsins. Haukar lögðu Aftureldingu 30-24 í Mosfellsbænum í kvöld og eru á toppnum ásamt Fram og HK, en Kópavogsliðið vann í kvöld góðan sigur á Fram 26-24 í hörkuleik í Digranesi.

Haukar, HK og Fram hafa öll hlotið 9 stig eftir sex fyrstu umferðirnar og Stjarnan kemur þar skammt á eftir með 8 stig og á leik til góða. 

Nánar verður fjallað um handboltann hér á Vísi í fyrramálið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×