Fótbolti

Reggina tapaði fyrir Inter

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Cascione, varnarmaður Reggina, berst hér um boltann við Julio Cruz, leikmann Inter.
Cascione, varnarmaður Reggina, berst hér um boltann við Julio Cruz, leikmann Inter. Nordic Photos / AFP

Emil Hallfreðsson var í byrjunarliði Reggina sem tapaði í dag fyrir Inter á heimavelli, 1-0.

Emil lék fyrstu 75 mínútu leiksins en markið kom strax á 18. mínútu. Þar var Adriano að verki.

Fyrr um daginn gerðu Roma og Napoli 4-4 jafntefli.

Inter er á toppi deildarinnar með fimm stiga forskot á Roma.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×