Fótbolti

Vidic í byrjunarliðinu

Elvar Geir Magnússon skrifar
Nemanja Vidic.
Nemanja Vidic.

Serbneski varnarmaðurinn Nemanja Vidic verður í byrjunarliði Manchester United í leiknum gegn Dynamo Kiev á morgun. Vidic er nýbyrjaður að æfa aftur eftir meiðsli sem hann hlaut í leik gegn Wigan fyrr í þessum mánuði.

Wes Brown fer því líklega aftur í hægri bakvörðinn á meðan Gerard Pique sest á varamannabekkinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×