Viðskipti innlent

Hlutabréf hækka í Kauphöllinni

Gengi Nikkei-vísitölunnar féll um 2,5 prósent í dag. Því er öfugt farið hér á landi.
Gengi Nikkei-vísitölunnar féll um 2,5 prósent í dag. Því er öfugt farið hér á landi. Mynd/AFP

Gengi hlutabréfa hækkaði almennt eftir upphaf viðskiptadagsins í Kauphöll Íslands í dag. Bréf Flögu hækkaði um 2,7 prósent en bankar og fjárfestingafélög fylgdu fast á hæla þess félags.

Þá hélt gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum áfram að hækka og stendur gengið í hæstu hæðum. Einungis gengi bréfa í Eimskipafélaginu hefur lækkað.

Það sem af er dags hefur gengi Úrvalsvísitölunnar hækkað um 1,53 prósent og stendur vísitalan í 7.334 stigum.

Þróuninni er öfugt farið úti í hinum stóra heimi. Nikkei-vísitalan féll um tæp 2,5 prósent við lokun hlutabréfamarkaðar í Japan í dag og hefur lækkun verið á nokkrum af helstu mörkuðum í Evrópu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×