Viðskipti erlent

Samdráttur hjá J. C. Penny

Úr einni af verslunum J. C. Penny í Bandaríkjunum.
Úr einni af verslunum J. C. Penny í Bandaríkjunum. Mynd/AFP

Hagnaður bandarísku verslanakeðjunnar J.C. Penny nam 261 milljón dala, jafnvirði 15,6 milljörðum íslenskra króna, á þriðja ársfjórðungi samanborið við 287 milljónir dala á sama tíma í fyrra. Þetta er níu prósenta samdráttur á milli ára. Stjórnendur verslunarinnar segja sölu hafa dregist saman á fjórðungnum og séu horfur á að efnahagurinn muni versna frekar á yfirstandandi fjórðungi þar sem ljóst þyki að neytendur haldi að sér höndum þessa dagana.

Hagnaðurinn nemur 1,17 dölum á hlut samanborið við 1,26 dali á sama tíma í fyrra. Þetta er engu að síður nokkru yfir væntingum markaðsaðila.

Tekjur verslunarinnar nam á tímabilinu 4,73 milljörðum dala, sem er einu prósenti minna en í fyrra. Í tilkynningu frá J.C. Penny kemur fram að salan hafi verið góð í byrjun hausts en versnað mjög í september og október þegar óróleika á mörkuðum varð vart en þá hafi neytendur haldið að sér höndum. Þá spilar veðurfar stórt hlutverk en veður var almennt gott í Bandaríkjunum á haustdögum sem leiddi til þess að færri fóru inn í verslanaleiðangur.

Gengi hlutabréfa í verslanakeðjunni féll um rúm fjögur prósent á mörkuðum vestanhafs í dag. Viðskipti hefjast eftir tæpan klukkutíma á fjármálamörkuðum vestanhafs og þykja vísbendingar um að lækkun muni einkenna daginn á fjármálamörkuðum líkt og víða um heim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×