Golf

Birgir Leifur á sjö höggum yfir pari í dag

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur.
Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur. Nordic Photos / Getty Images

Birgir Leifur Hafþórsson lék í dag á sjö höggum yfir pari á fyrsta keppnisdegi South African Airways-mótinu í Suður-Afríku en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi.

Hann hóf leik á tíundu braut í morgun og gekk vel á fyrstu níu holunum sínum. Hann fékk á þeim átta pör og einn skolla en aðeins fjórir kylfingar léku undir pari í dag.

Efstur er Englendingurinn Robert Rock sem lék á 70 höggum í dag, tveimur höggum undir pari. 

Birgi Leifi gekk hins vegar afleitlega á síðari níu holunum þar sem hann fékk einn fugl, fjögur pör, tvo skolla, einn skramba og einn þrefaldan skolla.

Fjölmargir þekktir kylfingar taka þátt í mótinu og má sjá árangur þeirra hér fyrir neðan.

Fyrsti keppnisdagur: Sjö yfir pari.

10. braut: Par 4 (353 metrar) - 4 högg (par)

11. braut: Par 4 (403 metrar) - 4 högg (par)

12. braut: Par 3 (183 metrar) - 3 högg (par)

13. braut: Par 5 (531 metrar) - 5 högg (par)

14. braut: Par 4 (356 metrar) - 4 högg (par)

15. braut: Par 3 (196 metrar) - 4 högg (skolli)

16. braut: Par 4 (422 metrar) - 4 högg (par)

17. braut: Par 4 (405 metrar) - 4 högg (par)

18. braut: Par 5 (550 metrar) - 5 högg (par)

Fyrri níu (par 36): 37 högg (einn yfir pari)

1. braut: Par 4 (390 metrar) - 5 högg (skolli)

2. braut: Par 4 (390 metrar) - 5 högg (skolli)

3. braut: Par 5 (570 metrar) - 5 högg (par)

4. braut: Par 3 (205 metrar) - 5 högg (skrambi)

5. braut: Par 5 (485 metrar) - 5 högg (par)

6. braut: Par 4 (332 metrar) - 3 högg (fugl)

7. braut: Par 4 (390 metrar) - 7 högg (þrefaldur skolli)

8. braut: Par 3 (209 metrar) - 3 högg (par)

9. braut: Par 4 (431 metrar) - 4 högg (par)

Seinni níu (par 36): 42 högg (sex yfir pari)

Samtals: 7 yfir pari (77.-93. sæti)

Aðrir þekktir kylfingar:

Angel Cabrera, Argentínu: 80 högg (átta högg yfir pari)

Retief Goosen, Suður-Afríku: 74 högg (tvö högg yfir pari)

Greg Norman, Ástralíu: 75 högg (þrjú högg yfir pari)

Ernie Els, Suður-Afríku: 77 högg (fimm högg yfir pari)

Tim Clark, Suður-Afríku: 75 högg (þrjú högg yfir pari)

Darren Clarke, Norður-Írlandi: 72 högg (á pari)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×