Menning

Birta, bækur og búseta

Hvað ertu að gera í Garðabæ?
Rúnar Helgi Vignisson spyr hvort listamenn eigi heima innan um kaupahéðna.
Hvað ertu að gera í Garðabæ? Rúnar Helgi Vignisson spyr hvort listamenn eigi heima innan um kaupahéðna.

Í tilefni af tuttugu og fimm ára afmæli Bókasafns Garðabæjar efnir menningar- og safnanefnd bæjarins til upplestrardagskrárinnar „Bókin og birtan“ þar á bæ. Í kvöld heimsækja Jón Yngvi Jóhannsson, bókmenntafræðingur og gagnrýnandi, og Rúnar Helgi Vignisson, rithöfundur og þýðandi, safnið.

Jón Yngvi ræðir um athyglisverðustu bækur ársins 2006 en hann hefur gagnrýnt bækur fyrir sjónvarpsþáttinn Kastljós. Rúnar Helgi mun á hinn bóginn ræða sýn sína á mannlífið í Garðabæ. Rúnar Helgi mun til að mynda freista þess að skilgreina bæjar­andann með sínum rithöfundar­augum, greina hugsunarhátt bæjarbúa og áherslur.

Sumt sér hann í kómísku ljósi, annað lítur hann alvarlegri augum og spyr sig meðal annars hvort listamenn eigi heima innan um kaupahéðna í Garðabæ. Rúnar Helgi er fæddur á Ísafirði en hefur búið í Garðabæ síðastliðin þrettán ár og sér því mannlífið jafnt með augum aðkomumanns sem heimamanns.

Dagskráin hefst kl. 20 í félagsmiðstöðinni Garðabergi, Garðatorgi 7. Aðgangur að dagskránni er ókeypis og öllum heimill.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.