Menning

Mannamyndir sýndar í Höfn

Dodda Maggý Kristjánsdóttir  á verk á portrettsýningu í Kaupmannahöfn.
Dodda Maggý Kristjánsdóttir á verk á portrettsýningu í Kaupmannahöfn.

Verk eftir sex íslenska listamenn voru valin á stórsýningu á portrettlistaverkum sem nú er uppi í Friðriksborgarhöll í Kaupmannahöfn. Það eru þau Dodda Maggý Kristjánsdóttir, Helgi Gíslason, Kristveig Halldórsdóttir, Magdalena Margrét Kjartansdóttir, Sesselja Tómasdóttir og Sigrún Eldjárn sem nutu þess heiðurs að fá inni á sýningunni, sem var opnuð á fimmtudag.

Sýningin byggir á samkeppni um verðlaun fyrir portrett sem efnt er til að frumkvæði hallarsafnsins sem á stærsta safn portrettmynda á Norðurlöndunum. Eru verðlaunin kennd við bruggarann J.C. Jacobsen og nema 75 þúsund krónum dönskum. Fagleg dómnefnd valdi verk á sýninguna sem var safnað á síðasta ári.

Þar eru ekki eingöngu hefðbundin portrettmálverk heldur hafa listamennirnir frjálst val um efnistök. Þetta er í fyrsta sinn sem efnt er til norrænnar samsýningar af þessu tagi en framvegis verða þær haldnar annað hvert ár.

Ekki var íslenska listafólkið sigursælt: Sonja Lillebæk Christensen frá Danmörku, Svíinn Sven Ljungberg og Daninn Torben Eskerod skipuðu verðlaunapallinn. En ánægjulegt er að íslenskir portrettistar skuli nýta sér þennan vettvang. Mannlýsing í mynd er sérhæft listform og mörg af meistaraverkum myndlistarinnar eru einmitt pöntun á mynd af mektarmanni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.