Viðskipti innlent

Metafkoma FL Group

Hagnaður FL Group nam 23,1 milljarði króna á fyrri helmingi árs, og jókst um 304 prósent milli ára. Rúmlega átta milljarða hagnaður varð á öðrum ársfjórðungi.

Heildareignir FL Group nema nú tæplega 320 milljörðum íslenskra króna. og hafa aukist um 56,7 milljarða það sem af er ári.

Hannes Smárason, forstjóri FL Group sagðist stoltur af þeim vexti sem orðið hefði á starfsemi FL Group fyrstu sex mánuði ársins "Þrátt fyrir góða niðurstöðu á fyrstu sex mánuðum ársins 2007 mun FL Group áfram kappkosta að bæta afkomu sína. Þetta er metnaðarfullt markmið en við trúum því að það sé raunhæft."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×