Körfubolti

Lakers - Minnesota í beinni á miðnætti

Kobe Bryant fór hamförum með Lakers í síðasta leik og skoraði 65 stig
Kobe Bryant fór hamförum með Lakers í síðasta leik og skoraði 65 stig NordicPhotos/GettyImages
Leikur LA Lakers og Minnesota Timberwolves verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á miðnætti í nótt. Kobe Bryant skoraði 65 stig í sigri Lakers í síðasta leik eftir að liðið hafði tapað sjö leikjum í röð og gaman verður að sjá hvort kappinn verður í viðlíka stuði í kvöld. Þá verður annar stórleikur á dagskrá í NBA í kvöld þegar Detroit tekur á móti Dallas.
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×