Menning

Listaverk horfið af yfirborði

Harpa leitar að tveimur verkum eftir listamálarann Jón Engilberts.
Harpa leitar að tveimur verkum eftir listamálarann Jón Engilberts. MYND/Anton

Harpa Þórsdóttir, deildarstjóri sýningardeildar Listasafns Reykjavíkur, leitar nú logandi ljósi að tveimur listaverkum eftir listamálarann Jón Engilberts.

Síðustu vikurnar hefur hún þó aðallega leitað að verkinu Sumarnótt sem var málað á tímabilinu 1962 til 1967. „Ég hélt alltaf að ég myndi finna þetta. Ég ímynda mér að þetta sé inni hjá einhverri fjölskyldu en það væri gaman að vita hvar það væri," segir Harpa, sem opnar sýningu með verkum Jóns þann 9. mars. Hún segir að annað verk eftir Jón, sem sé í eigu Kaupþings, sé svipað að uppbyggingu og Sumarnótt.

 

sumarnótt, verkið var málað af Jóni á sjöunda áratugnum.

Nefnist það Vor­gleði. Eru mótívin í báðum myndum vel þekkt hjá Jóni. „Þetta er mjög góður listamaður og hann hefur ákveðinn sess í okkar listasögu," segir hún um Jón. Tekur hún fram að verkið sé ekki nauðsynlegt fyrir sýninguna en hjálpi engu að síður til við að fylla upp í ákveðið tímabil hjá honum, áður en hann fór að fást við abstraktsjón í verkum sínum.

Hitt verkið sem Harpa leitar að nefnist Sunnudagur í sveit og er mun eldra, eða frá árinu 1938. Bæði verkin er að finna í ritröð um íslenska myndlist frá árinu 1988 í bók sem var gefin út af Listasafni ASÍ og Lögbergi. Þeim sem vita um afdrif þessara verka er vinsamlegast bent á að hafa samand við Hörpu á Listasafninu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.