Menning

Klassík á Rósenberg

Guðbergur Bergsson les úr Bernskubókum sínum í kvöld á Klappparstíg.
Guðbergur Bergsson les úr Bernskubókum sínum í kvöld á Klappparstíg.

Bækur eru greiðasti aðgangur almennings að vísdómi og skemmtun. Á þessum örlagatímum hefur Forlagið ákveðið að hleypa af stokkunum nýjum bókaklúbbi sem færir Íslendingum heimsbókmenntir á ótrúlega hagstæðu verði, auk þess sem boðið verður upp á sígild íslensk rit.

Klassíski kiljuklúbburinn mun einbeita sér að þeim verkum sem staðist hafa tímans hörðu tönn, bæði í erlendum bókmenntaheimi og íslenskum. Til kynningar á kiljuklúbbnum verður upplestrarkvöld á Café Rósenberg við Klapparstíg í kvöld. Einar Kárason les úr Glæpi og refsingu eftir Fjodor Dostojevskí, Auður Jónsdóttir les úr Á vegum úti eftir Jack Kerouac, Guðmundur Andri Thorsson les úr Punktur punktur komma strik eftir Pétur Gunnarsson, Jónína Leósdóttir les úr Samastað í tilverunni eftir Málfríði Einarsdóttur og Guðbergur Bergsson les úr eigin verki, Bernskunni. Dagskráin hefst kl. 20.30.

Tíu bækur eru þegar komnar út og sýna vel stefnu Klassíska kiljuklúbbsins. Úr fimm þeirra verður lesið á þriðjudagskvöld en hinar fimm eru Miðnæturbörn eftir Salman Rushdie, Ástin á tímum kólerunnar eftir Gabriel Garcia Marquez, Bréf til föðurins eftir Franz Kafka, og Bréf til Láru og Steinarnir tala eftir Þórberg Þórðarson.

Klassíski kiljuklúbburinn er starfræktur á vefsetri Forlagsins. Slóðin er www.forlagid.is/kiljuklubbur






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.