Fótbolti

Hoffenheim tapaði fyrsta leiknum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stuðningsmenn Hoffenheim á góðri stundu.
Stuðningsmenn Hoffenheim á góðri stundu. Nordic Photos / Getty Images

1899 Hoffenheim tapaði í dag sínum fyrsta leik í þýsku úrvalsdeildinni en nýliðarnir voru á toppi deildarinnar með fullt hús stiga fyrir leiki dagsins.

Hoffenheim varð að játa sig sigrað fyrir Bayer Leverkusen í dag, 5-2, þar sem Stefan Kiessling skoraði tvö marka Leverkusen.

Schalke, Hamburg og Dortmund eru öll á toppi deildarinnar með sjö stig en Leverkusen og Hoffenheim koma næst með sex stig.

Úrslit dagsins:

Schalke - Bochum 1-0

Wolfsburg - Frankfurt 2-2

Leverkusen - Hoffenheim 5-2

Cottbus - Dortmund 0-1

Bielefeld - Hamburg 4-2

Mönchengladbach - Werder Bremen 3-2




Tengdar fréttir

Stjóri Hoffenheim trúir ekki eigin augum

1899 Hoffenheim er eitt á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar eftir fyrstu tvær umferðirnar. Stjóri liðsins, Ralf Rangnick, finnst hann lifa í draumi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×