Enski boltinn

Ríflegt boð í Frazier Campbell

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Frazier Campbell í leik með Manchester United.
Frazier Campbell í leik með Manchester United. Nordic Photos / Getty Images
Hull hefur gert Manchester United tilboð upp á sjö milljónir punda í tvítuga sóknarmanninn Frazier Campbell sem lék með Hull á síðustu leiktíð sem lánsmaður.

Þá skoraði hann fimmtán mörk fyrir liðið er það tryggði sér sæti í ensku úrvalsdeildinni.

„Vandamálið er að þetta fer allt eftir því hvort þeim takist að fá annan sóknarmann og sá gæti verið búlgarskur," sagði Paul Duffen, stjórnarformaður Hull. Alex Ferguson hefur lengi verið á höttunum eftir sóknarmanni í sumar og þá helst Dimitar Berbatov frá Tottenham.

Annar sóknarmaður hjá United, Louis Saha, er á leið til Everton ef hann stenst læknisskoðun og ef United tekst ekki að fá annan sóknarmann er ólíklegt að þeir séu reiðubúnir að sleppa Campbell.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×