Enski boltinn

Rooney veiktist í Nígeríu

Elvar Geir Magnússon skrifar
Wayne Rooney í Afríku.
Wayne Rooney í Afríku.

Wayne Rooney mun missa af byrjun tímabilsins vegna veikinda sem hann fékk í Nígeríu. Hann fékk vírus í æfingaferð Manchester United í Afríku.

Hann verður ekki með í leiknum gegn Portsmouth um Samfélagsskjöldinn á sunnudag og verður líklega einnig fjarri góðu gamni gegn Newcastle í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar viku síðar.

United verður einnig án Cristiano Ronaldo sem fór í aðgerð á ökkla og mun líklega ekki snúa aftur fyrr en í október. Þá verða Nani í leikbanni og Anderson ekki með þar sem hann verður á Ólympíuleikunum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×