Enski boltinn

Ronaldo getur byrjað að æfa í vikunni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Cristiano Ronaldo, leikmaður Manchester United.
Cristiano Ronaldo, leikmaður Manchester United. Nordic Photos / Getty Images

Allt útlit fyrir að Cristiano Ronaldo byrji að æfa með Manchester United í þessari viku en hann gekkst nýverið undir aðgerð á ökkla.

Mikið hefur verið fjallað um Ronaldo í heimspressunni í sumar eftir að hann lýsti yfir vilja sínum til að ganga til liðs við Real Madrid. Forráðamenn United þvertóku fyrir það og nú fyrir stuttu sagði Alex Ferguson, stjóri United, að máli þessu væri lokið og hann myndi spila með United í vetur.

Ronaldo er þó ekki kominn til Englands en hann er á leið til Amsterdam þar sem hann mun hitta sérfræðing sem metur hversu vel aðgerðin gekk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×