Sigur hjá öllum Íslendingaliðunum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. september 2008 10:17 Jaliesky Garcia skoraði átta mörk fyrir Göppingen í gær. Mynd/Vilhelm
Öll úrvalsdeildarliðin og enn fremur öll Íslendingaliðin komust í gær áfram í þriðju umferð þýsku bikarkeppninnar í handbolta. Logi Geirsson og félagar í Lemgo féllu nokkuð óvænt úr leik er liðið tapaði fyrir Lübbecke sem leikur í B-deildinni í fyrrakvöld. Þórir Ólafsson skoraði sex mörk fyrir Lübbecke í leiknum. Hins vegar voru flest, ef ekki öll úrslit eftir bókinni í gær þegar 25 leikir fóru fram í annarri umferð bikarkeppninnar. Öll úrvalsdeildarliðin komust áfram í næstu umferð sem og þau Íslendingalið sem eru í neðri deildunum. Kiel vann ellefu marka sigur á Ahlener SG, 37-26, en Alfreð Gíslason er þjálfari Kiel sem hefur titil að verja. Hannover-Burgdorf, sem leikur í annarri deildinni, vann sigur á HSV Hannover, 23-19. Heiðmar Felixsson og Hannes Jón Jónsson skoruðu þrjú mörk hvor fyrir Hannover-Burgdorf. Minden vann góðan sigur á Bremervörde á útivelli, 28-19. Ingimundur Ingimundarson skoraði þrjú mörk fyrir Minden, þar af eitt úr víti. Gylfi Gylfason skoraði tvö en annað þeirra kom úr víti. Grosswallstadt vann Bergischer, 30-23. Einar Hólmgeirsson lék með Grosswallstadt í leiknum en komst ekki á blað þrátt fyrir þrjár skottilraunir í leiknum. Göppingen vann Hüttenberg, 32-25, á útivelli. Jaliesky Garcia var markahæstur í liði Göppingen og skoraði átta mörk, þar af eitt úr víti. Gummersbach vann stórsigur á Köndringen/Teningen, 42-25. Róbert Gunnarsson var markahæstur hjá Gummersbach með sjö mörk. Düsseldorf vann Ferndorf, 43-35. Sturla Ásgeirsson skoraði þrjú mörk fyrir Düsseldorf í leiknum. Flensburg vann Hildesheim, 35-30, en Alexander Petersson gat ekki leikið með Flensburg vegna meiðsla.
Handbolti Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira