Formúla 1

Kona Ecclestone sækir um skilnað

Ecclestone stendur í skilnaði
Ecclestone stendur í skilnaði NordicPhotos/GettyImages

Slavica Ecclestone, eiginkona formúlumógúlsins Bernie Ecclestone, hefur farið fram á skilnað við bónda sinn.

Breska sjónvarpið greinir frá þessu í dag en ljóst þykir að Slavica mun ekki þurfa að hafa áhyggjur af fjármálunum á næstu árum, því eigur bónda hennar munu metnar á yfir tvo milljarða punda.

Sérfræðingur sem BBC ræddi við vegna fréttarinnar segir að frú Ecclestone gæti átt von á allt að helmingi af eigum bónda síns.

Ef svo færi yrðu það mögulega hæstu bætur sem fyrrverandi eiginkonu yrðu dæmdar í sögunni.

Ecclestone hjónin giftu sig árið 1985 og eiga saman tvær dætur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×