Enski boltinn

Ekkert múður hjá Scolari

NordcPhotos/GettyImages

John Terry, fyrirliði Chelsea, segir engan vafa leika á því að Luiz Felipe Scolari sé maðurinn til að stýra liðinu og segist ekki vilja lenda í skammarkróknum hjá Brasilíumanninum.

"Ég myndi sannarlega ekki vilja lenda í hundakofanum hjá honum. Hann er sannarlega með sterkt skap. Scolari hefur virðingu okkar allra. Hann hefur gott skopskyn, en hann á sér aðra alvarlegri hlið - trúið mér," sagði Terry og er ánægður með nýja stjórann.

"Hann er mikill knattspyrnuspekúlant og árangur hans talar sínu máli. Hann er góður náungi og skilur leikmennina, enda hefur hann unnið með mörgum frábærum leikmönnum," sagði fyrirliðinn í samtali við Sky.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×