Enski boltinn

„Hermann! Viltu hætta að leika við krakkana“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hermann Hreiðarsson verður seint talinn mikill rólyndispiltur þótt öðlingsdrengur sé.
Hermann Hreiðarsson verður seint talinn mikill rólyndispiltur þótt öðlingsdrengur sé. Nordic Photos / AFP

Skemmtileg uppákoma varð á blaðamannafundi með Sol Campbell í dag sem má skrifa á landsliðsmanninn Hermann Hreiðarsson.

Blaðamenn voru saman komnir til að ræða við Campbell um leik Manchester United og Portsmouth um Samfélagsskjöldinn á sunnudaginn kemur.

Þá heyrist mikill skarkali fyrir utan herbergið þar sem Hermann er að leika við nokkur börn. Einn blaðamannanna bað Hermann vinsamlegast að hætta því.

BBC birti myndband af uppákomunni á heimasíðu sinni í dag og má sjá það hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×